Virðum starfið, starfsheitið og öryggið
Vikan hefur verið fjölbreytt sem endranær. Unnið hefur verið að innri gæðamálum félagsins, margvíslegum réttindamálum félagsmanna og kynningu vegna virðismats starfa hjá sjúkraliðum sem starfa á fimm heilbrigðisstofnunum ríkisins. Upplýsingar um verkefni er að finna í pistlinum.

Virðismat starfa skiptir máli
Nú stendur yfir fyrirlögn spurningalista vegna þróunar á virðismati starfa hjá ríkinu. Verkefnið er mikilvægt tímamótaverkefni í þágu launajafnréttis og miðar að því að störf verði metin með málefnalegum hætti út frá þeim kröfum sem þau gera til þekkingar, færni, ábyrgðar, álags og vinnuumhverfis. Sjúkraliðar eru einn þeirra starfahópa sem teknir eru sérstaklega til skoðunar í þessari fyrstu vinnu. Verkefnið nær til starfsfólks á Landspítala (LSH), Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk), Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE).
Þau ykkar sem hafa fengið spurningalistann sendan frá Jafnlaunastofu eru eindregið hvött til að taka þátt og svara honum vandlega. Þetta er ekki mat á frammistöðu einstaklinga heldur tækifæri til að lýsa starfinu sjálfu; ábyrgðinni, álaginu, samskiptunum, færninni og aðstæðunum sem sjúkraliðar vinna við á hverjum degi. Því fleiri sem taka þátt, því skýrari og traustari verður myndin af starfi sjúkraliða. Samkvæmt upplýsingum frá Jafnlaunastofu er gert ráð fyrir að þátttakendur fái svigrúm til að svara könnuninni á vinnutíma.
Nýútskrifaðir sjúkraliðar eiga að njóta virðingar
Undanfarið hafa félaginu borist óvenju margar og alvarlegar ábendingar vegna stöðu nýútskrifaðra sjúkraliða. Ég vil byrja á því að óska öllum nýútskrifuðum sjúkraliðum innilega til hamingju með brautskráninguna. Það er stór áfangi að ljúka sjúkraliðanámi og heilbrigðisþjónustan þarf svo sannarlega á ykkur að halda. Það á að vera fagnaðarefni þegar nýir sjúkraliðar ljúka námi og stíga sín fyrstu skref inn í heilbrigðisþjónustuna sem fagmenntaðir heilbrigðisstarfsmenn. Það á að taka á móti þeim af virðingu, festu og fagmennsku. Þess vegna er það mikið áhyggjuefni þegar nýútskrifuðum sjúkraliðum er boðin störf undir öðrum starfsheitum, til dæmis sem „sérhæfðir starfsmenn“, þrátt fyrir að þeir hafi lokið sjúkraliðanámi og séu að sækja um eða fá starfsleyfi.
Sjúkraliði er lögverndað starfsheiti. Það stendur fyrir nám, hæfni, faglega ábyrgð og stöðu innan heilbrigðisþjónustunnar. Ef einstaklingur hefur lokið sjúkraliðanámi, fengið starfsleyfi og er ráðinn til að sinna verkefnum sjúkraliða, þá á að ráða hann sem sjúkraliða. Það á ekki að fela sjúkraliðastörf á bak við önnur heiti. Slíkt grefur undan nýliðun, starfsþróun og virðingu fyrir menntun stéttarinnar.
Sérstakar ábendingar hafa borist vegna stöðu nýútskrifaðra sjúkraliða á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Við munum funda með forsvarsfólki Höfða á mánudaginn og fylgja málinu fast eftir. Þá hafa einnig borist sambærilegar ábendingar frá nýútskrifuðum sjúkraliðum á Landspítala, sem hafa ekki fengið ráðningu sem sjúkraliðar í beinu framhaldi af útskrift, heldur verið ráðnir sem „sérhæfðir starfsmenn“ og skráðir í annað stéttarfélag. En spítalinn er að útfæra verklagsreglur sem eiga að koma í veg fyrir að svona gerist.
Sjúkraliðafélagið mun ekki sætta sig við að lögverndað starfsheiti sé sniðgengið með ráðningarformum eða orðalagi sem dregur úr faglegri stöðu sjúkraliða. Þetta snýst ekki aðeins um starfsheiti á blaði, heldur um virðingu fyrir menntun, réttindum, ábyrgð og framtíð stéttarinnar.
Bráðamóttakan er enn áhyggjuefni
Á sama tíma virðist lítið þokast í þá átt að bæta aðbúnað og starfsaðstæður starfsfólks á Bráðamóttöku Landspítala, þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar og alvarlegar frásagnir af stöðunni. Starfsfólk lýsir áfram miklu álagi, þrengslum og aðstæðum sem geta verið bæði krefjandi og hættulegar. Sérstaklega þarf að bæta aðbúnað og starfsaðstæður sjúkraliða á Bráðamóttökunni. Sjúkraliðar eru alltof fáir á vakt miðað við álag og umfang verkefna. Okkur berast lýsingar á því að stundum sé aðeins einn sjúkraliði á vakt og stundum enginn. Það er óboðlegt. Slíkt ástand er ekki hægt að réttlæta þegar um er að ræða eina viðkvæmustu og mest krefjandi einingu heilbrigðiskerfisins. Áhyggjur af smitvörnum, sýkingavörnum, aðstöðu, mönnun og öryggi eru enn til staðar. Það er ekki nóg að vísa til þess að staðan hafi einhvern tíma verið verri. Viðmiðið á að vera hvort starfsfólk og sjúklingar búi við öruggar, faglegar og mannúðlegar aðstæður í dag.
Fréttir af berklasmitum meðal starfsfólks bráðamóttökunnar eru grafalvarlegar. Slíkt kallar á gagnsæi, einbeitt viðbrögð og raunverulegar úrbætur. Smitvarnir þurfa rými, búnað, skýra verkferla, mönnun og vinnuumhverfi sem gerir starfsfólki kleift að fylgja reglum. Starfsfólkið býr ekki til þrengslin og á ekki að bera ábyrgð á kerfislægum vanda sem hefur fengið að þróast of lengi. Þegar ábendingar berast um ófullnægjandi aðstæður til smitvarna og sjúklinga sem liggja berskjaldaðir á göngum. Við þessu þarf að bregðast við af festu. Þetta eru ekki rekstrarleg smáatriði. Þetta eru grundvallaratriði í heilbrigðisþjónustu.
Staðan snýst ekki síður um sjúklinga. Þegar veikburða, meðvitundarskertir eða varnarlitlir einstaklingar liggja á göngum, fyrir allra augum, er verið að skerða friðhelgi, persónuvernd, öryggi og mannlega reisn. Enginn á að þurfa að liggja berskjaldaður á gangi sjúkrahúss. Þessi mál eru ólík, en eiga sér sameiginlegan kjarna. Virðingu fyrir starfi sjúkraliða, öryggi starfsfólks og mannlegri reisn sjúklinga.
Krafan er skýr
Við hvetjum alla sjúkraliða sem fá spurningalista vegna virðismats starfa til að taka þátt og svara vandlega. Rödd ykkar skiptir máli. Það eruð þið sem þekkið starfið, ábyrgðina, álagið og aðstæðurnar best.
Við krefjumst þess að nýútskrifaðir sjúkraliðar fái stöðu í samræmi við menntun sína, starfsleyfi og þau verkefni sem þeim er ætlað að sinna. Við krefjumst þess að lögverndað starfsheiti sjúkraliða sé virt.
Við krefjumst þess einnig að aðstæður á Bráðamóttöku Landspítala verði teknar föstum tökum. Aðbúnaður, mönnun, smitvarnir, vinnuvernd og öryggi starfsfólks og sjúklinga verða að vera tryggð í verki.
Virðing fyrir sjúkraliðum á að sjást í ráðningum, starfsheitum, kjörum, aðbúnaði, öryggi og mati á störfum. Virðing fyrir sjúklingum á að sjást í aðstöðu, vernd, næði og mannúð.
Sjúkraliðafélagið mun áfram fylgja réttindamálum eftir og krefjast þess að starf sjúkraliða sé metið af sanngirni, raunsæi og faglegri virðingu.
Góða helgi!
Myndir frá brautskráningum sjúkraliða vorið 2026

Útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Fjölbrautarskóla Vesturlands

Útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla

Útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti

Útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra

Útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Fjölbrautarskólanum á Húsavík

Útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Fjölbrautarskólanum á Ísafirði

Útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Fjölbrautarskólanum í Vestmannaeyjum
-1944x4288.jpg&w=3840&q=75)
Sú sem mætti við útskrift nemenda á sjúkraliðabraut frá Verkmenntaskóla Akureyrar