Fólkið, fagið og ábyrgðin
Í samtölum við sjúkraliða finn ég bæði metnað til að sinna fólki vel og skýra kröfu um að fá aðstæður til þess. Þekking sjúkraliða þarf að nýtast, ábyrgðin að vera viðurkennd og tími og stuðningur að vera til staðar. Þessar áherslur eiga að móta starf félagsins og þurfa að heyrast í umræðunni um mönnun hjúkrunarheimila. Við höfum reynslu fram að færa og góðar ástæður til að láta rödd okkar heyrast. Fyrst vil ég þó staldra við og minnast manns sem átti mikilvægan þátt í uppbyggingu félagsins og lagði sitt af mörkum til þeirrar hagsmunabaráttu sem við höldum áfram í dag.

Í dag fór fram útför Gunnars Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjúkraliðafélags Íslands. Gunnar gegndi starfinu á árunum 1990–2008 og átti mikilvægan þátt í undirbúningi og uppbyggingu sjálfstæðs stéttarfélags sjúkraliða. Þar vann hann með Kristínu Á. Guðmundsdóttur, þáverandi formanni, Birnu Ólafsdóttur, þáverandi skrifstofustjóra, og stjórn félagsins. Þekking hans og reynsla komu að góðum notum þegar sjúkraliðar tóku samningsmál sín í eigin hendur.
Mig langar að þakka Gunnari framlag hans til félagsins og starfið í þágu sjúkraliða. Það er mikilvægt að halda til haga störfum þeirra sem lögðu grunninn að því félagi sem við tilheyrum í dag. Við minnumst hans með virðingu og þakklæti og vottum fjölskyldu hans og ástvinum einlæga samúð.
Samtalið þarf að skila sér í starfinu
Trúnaðarmannaráðsfundurinn á Hótel Örk í síðustu viku hefur einnig verið mér hugleikinn. Þar ræddu trúnaðarmenn meðal annars mönnun, starfsumhverfi, fræðslu og framkvæmd kjarasamninga. Skýr áhersla kom fram á að þekking sjúkraliða fengi að nýtast betur og að ábyrgð þeirra endurspeglaðist í verkefnum, starfslýsingum og kjörum. Mér finnst verðmætt að eiga þetta samtal við fólk sem þekkir aðstæðurnar af eigin raun. Þá verða viðfangsefnin áþreifanleg. Umræða um vaktaskipulag verður að samtali um fjölskyldulíf og hvíld. Umræða um mönnun verður að spurningunni um hvort tími gefist til að sinna fólki eins vel og við viljum. Og starfsþróun snýst um hvort sjúkraliði fái raunverulega tækifæri til að nýta það sem hann hefur lært.
Næsta skref er að vinna úr niðurstöðunum og forgangsraða verkefnum. Sum þeirra eiga heima innan félagsins, önnur í samstarfi við vinnuveitendur og enn önnur í kjaraviðræðum. Þannig á reynslan af vinnustöðunum að móta áframhaldandi starf okkar.
Mönnun er líka spurning um þekkingu og ábyrgð
Umfjöllun síðustu daga um manneklu á hjúkrunarheimilum hefur vakið margar spurningar hjá mér. Þar hefur athyglinni meðal annars verið beint að aðstæðum og álagi hjúkrunarfræðinga. Þegar við skoðum mönnun þurfum við að horfa á meira en fjölda starfsfólks á vakt. Hvaða þjónustu þurfa íbúarnir? Hvaða menntun og færni er til staðar? Hvernig er verkefnum skipt og hefur starfsfólkið aðstæður til að sinna þeim? Í þeirri umræðu vil ég að starf sjúkraliða sé skýrt og sýnilegt.
Eitt atriði finnst mér sérstaklega mikilvægt að árétta því oft er talað um að aðeins einn eða tveri hjúkrunarfræðingar séu á vakt. En hjúkrunarfræðingar bera ekki einir faglega ábyrgð á þjónustunni. Lög um heilbrigðisstarfsmenn gera faglegar kröfur til allra löggiltra heilbrigðisstétta. Hver heilbrigðisstarfsmaður þarf að sinna sínum verkefnum af fagmennsku, viðhalda þekkingu sinni, þekkja takmörk eigin færni og leita aðstoðar þegar þess þarf. Ábyrgð sjúkraliða er einnig tilgreind í 5. gr. reglugerðar nr. 511/2013. Þar kemur fram að þeir beri ábyrgð á eigin hjúkrunar- og umönnunarstörfum. Ábyrgðin tekur mið af menntun þeirra, þjálfun og færni, og viðbótarmenntun hefur þar einnig vægi. Sjúkraliðar eru því ekki ábyrgðarlausir þátttakendur í þjónustunni, heldur löggilt fagstétt með skilgreindar skyldur. Þetta dregur ekki úr ábyrgð hjúkrunarfræðinga eða mikilvægi starfa þeirra. Það skýrir hins vegar að fagleg ábyrgð sjúkraliða hverfur ekki þótt þeir vinni í teymi með hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki. Samstarfið þarf að byggjast á því að við þekkjum og virðum hlutverk hvert annars.
Lyfjagjöf er hluti af daglegu starfi
Lyfjagjöf er gott dæmi um verkefni sem þarf að vera sýnilegt þegar störfum sjúkraliða er lýst. Hún er hluti af daglegu starfi margra sjúkraliða og fer fram samkvæmt fyrirmælum og viðeigandi verklagi, innan marka menntunar og þjálfunar. Þátttakan felur einnig í sér að fylgjast með líðan og áhrifum meðferðar, skrá athuganir og koma upplýsingum áfram til annarra í teyminu. Þetta er meðal þess sem félagið lýsti í umsögn sinni til Alþingis um frumvarp um viðbrögð við lyfjaskorti. Í umsögninni benti félagið jafnframt á að sjúkraliðar væru ekki nefndir í lyfjalögum, þótt þeir sinntu veigamiklum þáttum í framkvæmd lyfjameðferðar og eftirfylgni hennar. Þar var verið að vekja athygli á muninum á því hvernig störfin birtast í lagarammanum og því sem fer fram á vettvangi. Fyrir mér undirstrikar þetta hversu mikilvægt er að lýsa störfum okkar af nákvæmni. Það sem sjúkraliði gerir á hverri vakt getur orðið svo sjálfsagður hluti af daglegu lífi að þekkingin og ábyrgðin að baki sjáist ekki. Um leið þarf ábyrgð að fylgja raunhæft svigrúm til að sinna starfinu. Við getum ekki rætt um faglegar skyldur án þess að ræða líka tíma, mönnun, skýrar starfslýsingar, stuðning og aðgengi að öðru fagfólki. Að nýta þekkingu sjúkraliða betur þýðir ekkki að bæta fleiri verkefnum á þegar þéttskipaða vakt.
Við höfum mikilvæga reynslu fram að færa
Ég vil að sjúkraliðar finni að reynsla þeirra eigi erindi í þessa umræðu. Segið frá því hvað starfið felur í sér, hvar þekking ykkar nýtist og hvar aðstæðurnar þurfa að batna. Það er ekki síður mikilvægt að segja frá því sem gengur vel og hægt er að læra af. Markmiðið er ekki að gera hlut einnar stéttar meiri á kostnað annarrar. Það er að fá réttari mynd af þjónustunni og skapa betri aðstæður fyrir fólkið sem veitir hana og fólkið sem reiðir sig á hana. Takk fyrir samtölin, ábendingarnar og framlag ykkar til félagsins. Ég hef trú á því sem við getum áorkað þegar við nýtum reynsluna okkar, hlustum hvert á annað og fylgjum verkefnunum eftir.
Góða helgi!
