Fréttir

Viðmið um tekjur og eignir leigutaka Bjargs hækka

6 jan. 2020

Hámarksviðmið um tekjur og eignir leigutaka hjá Bjargi íbúðafélagi hækka í kjölfar breytinga sem Alþingi gerði á lögum um almennar íbúðir. Breytingarnar tóku gildi í byrjun janúar.

Fagna ber þessum breytingum sem munu veita fleiri einstaklingum og fjölskyldum kost á hagkvæmu og öruggu leiguhúsnæði. Opið er fyrir skráningar samkvæmt nýju tekjuviðmiði á vef Bjargs.

Þá munu virkir umsækjendur sem áður höfðu fengið höfnun vegna of hárra tekna eða eigna, en falla nú undir ný viðmið, fá boð um íbúð eftir því sem þær standa til boða.Hámarksviðmið eru nú eftirfarandi:

6.420 þúsund krónur á ári, fyrir skatta (eða 535 þúsund krónur á mánuði) fyrir hvern einstakling.
8.988 þúsund krónur á ári, fyrir skatta (eða 749 þúsund krónur á mánuði) fyrir hjón og sambúðarfólk.
1.605 þúsund krónur á ári, fyrir skatta (eða 133.750 krónur á mánuði) fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu.
Þá má heildareign heimilis ekki vera hærri en 6.930 þúsund krónur.
Á næstu dögum og vikum mun Bjarg opna fyrir umsóknir á fjórum nýjum stöðum; í Hraunbæ, á Kirkjusandi, í Silfratjörn í Úlfarsárdal og í Guðmannshaga á Akureyri. Nú þegar er opið fyrir umsóknir vegna leiguíbúða í Þorlákshöfn. Nánari upplýsingar um nýjar íbúðir og skilyrði fyrir úthlutun má finna á vef Bjargs.

Nánar um þessar breytingar má lesa á vef BSRB 

Til baka