Fréttir

Þokast hægt áfram í kjaraviðræðum

11 sep. 2019

Kjaraviðræður BSRB við viðsemjendur hafa haldið áfram undanfarið. Viðræður hafa heldur þokast í rétta átt þó hægt hafi gengið. Enn á eftir að leysa úr stórum ágreiningsmálum á borð við styttingu vinnuvikunnar og jöfnun launa milli markaða.

Kjarasamningar flestra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá því í byrjun apríl og viðræður við viðsemjendur staðið yfir síðan. BSRB fer með samningsumboð í ákveðnum málaflokkum en aðildarfélög bandalagsins semja hvert fyrir sig um laun og ýmis sérmál. Viðsemjendur eru þrír; ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg.

Í sumar náðist samkomulag um endurnýjaða viðræðuáætlun. Þar kom fram að stefnt væri að því að ná kjarasamningum fyrir 15. september, sem ljóst er að mun ekki nást.

Áhersla BSRB er að vaktavinnuhópar verði í forgrunni enda er ógerningur að manna vaktavinnu starfsmanna í 100% starfi án þess að brjóta vinnutímaákvæði. Stofnaður hefur verið sérstakur undirhópur í kjaraviðræðunum við ríkið sem hefur fjallað um mögulegar útfærslur á styttingu vinnuvikunnar. Áformað er að hópurinn skili niðurstöðu fljótlega og í kjölfarið vonast samninganefnd BSRB eftir því að hægt verði að ná saman um þetta mikilvæga hagsmunamál félagsmanna í aðildarfélögum BSRB.

Orlofsmál hafa einnig verið til umræðu í kjarasamningsviðræðunum. Þann 1. júní síðastliðinn tók gildi bann við mismunun á grundvelli aldurs. Orlofsávinnsla hefur verið tengd lífaldri hjá opinberum starfsmönnum og því þarf að breyta í þessum kjarasamningum.

Þá hefur BSRB einnig lagt þunga áherslu á að samið verði um jöfnun launa milli opinbera vinnumarkaðarins og hins almenna, enda skýrt kveðið á um jöfnun launa milli markaða í samkomulagi sem gert var í tengslum við breytingu á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna árið 2016. Í samkomulaginu skuldbundu ríki og sveitarfélög sig til að leiðrétta launamuninn innan tíu ára.

Til baka