Fréttir

Réttindi launafólks aukin með nýrri tilskipun ESB

12 ágú. 2019

Ýmis ný réttindi fyrir launafólk er að finna í nýsamþykktri tilskipun Evrópusambandsins (ESB) um samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Þar sem Ísland er aðili að EES samningnum mun þurfa að innleiða tilskipunina á Íslandi. Ekki liggur fyrir hvernig eða hvenær það verður gert, en það er bæði hægt að gera með lögum og kjarasamningum.

Í tilskipuninni felast réttindi sem munu hafa áhrif hér á landi. Réttur til foreldraorlofs, sem er réttur til orlofs til að annast barn í allt að fjóra mánuði, verður greiddur. Hingað til hefur orlofið verið launalaust. Aðildarríki ESB og EES hafa svigrúm til þess að ákveða fjárhæð greiðslnanna, en lögð er áhersla á að greiðslurnar séu þess eðlis að þær hvetji báða foreldra til þess að taka foreldraorlof. Þá er einnig kveðið á um umönnunarleyfi, það er fimm daga af greiddu leyfi til þess að annast ættingja sem þurfa umönnun. Í íslenskum kjarasamningum er réttur til þess að annast börn í veikindum og má líta svo á að sá réttur verði að einhverju leyti rýmkaður með þessari tilskipun. Þessi breyting er í takt við stefnu BSRB.
Þá er einnig kveðið á um rétt foreldra ungra barna til að krefjast sveigjanleika í vinnu. Í jafnréttislögum er nú þegar ákvæði um samþættingu atvinnu- og fjölskyldulífs, en tilskipuninni er ætlað að styrkja þann rétt sem launafólk hefur.

Sjá frétt á síðu BSRB.

Til baka