Fréttir

Reglur fyrir Deild sjúkraliða með sérnám innan Sjúkraliðafélags Íslands

4 nóv. 2015

1. gr.: Heiti og starfsvettvangur

Nafn deildarinnar er Deild sjúkraliða með sérnám. Deild sjúkraliða með sérnám er deild innan Sjúkraliðafélags Íslands. Heimili og varnarþing deildarinnar er Reykjavík.

Starfsvettvangur deildarinnar og verkefni er að þjónusta alla sem lokið hafa eins árs sérnámi og hafa rétt til að bera starfsheitið sjúkraliði.

2. gr.: Réttur til aðildar

Félagsmenn eru þeir sjúkraliðar í Sjúkraliðafélagi Íslands sem lokið hafa a.m.k. eins árs framhaldsnámi í hjúkrun.

3. gr.: Lög

Lög Sjúkraliðafélags Íslands eru lög deildarinnar og félagsmanna hennar, eftir því sem við á.

4. gr.: Hlutverk

Hlutverk deildarinnar og markmið eru þau sem kveðið er á um í 2. kafla laga Sjúkraliðafélags Íslands og ber deildinni og forystu hennar að vinna að framgangi þeirra stefnumiða á sínum starfsvettvangi.

Með því

  • að vinna að því að samningar félagsins séu haldnir og réttindi félagsmanna í heiðri höfð.
  • að reyna að leysa þau ágreiningsmál sem upp kunna að koma og bundin eru við félagsmenn.
  • að efla gagnkvæman skilning og einingu meðal félagsmanna og annarra launamanna.
  • að veita félagsstjórn SLFÍ aðstoð við söfnun gagna og upplýsinga og annað sem hún kann að óska eftir.
  • að halda uppi öflugu fræðslu og menningarstarfi innan vébanda sinna.
  • að við brautskráningu sjúkraliða úr framhaldsnámi, séu fulltrúar fagdeildar viðstaddir og afhendi þeim rós og heillaóskir félagsins og bjóði þá velkomna í hópinn.

5. gr.: Stjórn

Stjórn deildarinnar skal kosin á aðalfundi til tveggja ára.

Stjórnina skipa: formaður, fjórir meðstjórnendur og einn til vara.

Formaður skal kosinn sérstaklega.

Endurkjör stjórnarmanna er heimilt.

Kosning stjórnar skal fara fram árlega og tveir stjórnarmanna kjörnir hverju sinni.

6. gr.: Störf stjórnar

Stjórn deildarinnar er tengiliður milli félaga deildarinnar og félagsstjórnar Sjúkraliðafélags Íslands. Formaður Deildar sjúkraliða með sérnám, hefur rétt á að sitja fundi félagsstjórnar með málfrelsi og tillögurétt ef á dagskrá hennar eru málefni er varða deildina eða félagsmenn hennar sérstaklega.

Formaður boðar stjórnarfundi og aðra fundi deildarinnar. Að loknu stjórnarkjöri skal formaður boða til stjórnarfundar við fyrstu hentugleika. Á fundinum skiptir stjórnin með sér verkum og kýs úr sínum hópi varaformann, gjaldkera og ritara.

Stjórn deildarinnar getur skipað nefndir og starfshópa til að vinna að einstökum málefnum fyrir deildina.

7. gr.: Fjármál

Stjórn deildarinnar skal gera starfs – /viðburðaáætlun fyrir komandi starfsár og leggja fyrir aðalfund til samþykktar.

Beiðni um fjárframlag úr aðalsjóði Sjúkraliðafélags Íslands, samkvæmt samþykktri starfs – /viðburðaáætlun fyrir komandi starfsár ásamt sundurliðun á áætluðum kostnaði fyrir hvern viðburð skal senda inn til félagsstjórn einum mánuði fyrir áætlaðan viðburð.

Senda skal inn til Sjúkraliðafélags Íslands reikninga og fylgiskjöl fyrra árs fyrir 1. febrúar til varðveislu.

8. gr.: Aðalfundur

Aðalfundur deildarinnar skal haldinn árlega á tímabilinu september – desember sbr. ákvæði 12. gr. laga Sjúkraliðafélags Íslands. Skýrslu formanns, kosna fulltrúa til setu á fulltrúaþingi og uppstillingu stjórnar deildarinnar skal senda félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands fyrir 1. febrúar. auk tillagna og greinargerða sem leggja á fyrir fulltrúaþing eða félagsstjórn.

Til aðalfundar skal boða með a.m.k. 2 vikna fyrirvara. Fundurinn skal auglýstur á tryggilegan hátt og þess getið í fundarboði ef fyrirhugaðar eru breytingar á reglum deildarinnar. Þess skal getið í fundarboði þegar formannskjör er og hverjir séu í kjöri til formanns deildarinnar.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Kosning fundarstjóra.
  2. Kosning ritara fundarins
  3. Skýrsla formanns um starfsemi deildarinnar.
  4. Lögð fram starfs – /viðburðaáætlun fyrir komandi starfsár til samþykktar.
  5. Tillögur um breytingar á reglum deildarinnar.
  6. Kosning formanns til tveggja ára.
  7. Kosning stjórnar til tveggja ára.
  8. Kosning tveggja fulltrúa deildarinnar til setu á fulltrúaþingi Sjúkraliðafélags Íslands samkvæmt ákvæðum g.liðar 19. gr.: laga félagsins.
  9. Önnur mál.

9. gr.: Deildarfundir

Deildarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Deildarfundi skal boða með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara, með tölvupósti, á samskiptamiðlum t.d. Facebook skilaboðum og auglýsingum t.d vinnustöðum þar sem því verður við komið. 

Stjórn deildarinnar er skylt að boða til deildarfundar ef fimmtungur félagsmanna deildarinnar krefst þess og tilgreinir fundarefni.

10. gr.: Breyting á reglum

Reglum deildarinnar má aðeins breyta á aðalfundi, enda hafi tillögum um breytingu/ar verið getið í fundarboði.

Breytingar á reglunum þarf að senda til félagsstjórnar Sjúkraliðafélags Íslands og til laganefndar til umsagnar fyrir 1. febrúar.

Reglubreytingarnar öðlast ekki gildi fyrr en þær hafa hlotið staðfestingu fulltrúaþings Sjúkraliðafélags Íslands, að fenginni umsögn laganefndar félagsins.

Drög að reglum deildarinnar voru samþykktar á stofnfundi Deildar sjúkraliða með sérnám í Borgarleikhúsinu 21. desember 2002 með fyrirvara um að lög Sjúkraliðafélags Íslands breytist og heimili stofnun deildarinnar.

Reglur deildarinnar voru samþykktar á fulltrúaþingi Sjúkraliðafélags Íslands miðvikudaginn 14. maí 2003.

Reglur deildarinnar voru lagðar fram á fulltrúaþingi SLFÍ 31. maí 2007 og samþykktar þannig

Prentvæn útgáfa

Til baka