Fréttir

Nuddnámskeið í klassísku vöðvanuddi og svæðanuddi vorið 2016

11 jan. 2016

Gunnar L. Fridriksson 1

Gunnar L. Fridriksson 1

Nuddnámskeið vor 2016

Hef verið með námskeið í klassísku vöðvanuddi og svæðanuddi síðustu þrettán ár.

Hvert námskeið er 18 kennslustundir og eru haldin á þriðjudögum og miðvikudögum milli kl. 16.15 og 19.15 og stendur yfir í tvær vikur þ.e. fjögur skipti. Einnig hef ég farið út á landsbyggðina og haldið helgarnámskeið. Næstu námskeið verða sem hér segir:

Svæðanudd

2. –3. og 9. – 10. febrúar.

Í svæðanuddi er farið inn á öll kerfi líkamans gegnum iljar, rist og ökkla. Á námskeiðinu er farið í gegnum hugmyndafræði og sögu svæðanudds og verklega kennslu. Eftir námskeiðið á fólk að geta nuddað heilnudd í svæðanuddi sjálfstætt. Verð á námskeiðið er 28.000 kr. Innifalið í námskeiðinu er kennslumappa, plakat með svæðum fóta og dvd diskur sem tekinn var upp á námskeiði hjá mér nemendum til stuðnings.

Klassískt vöðvanudd

Það verða tvö eins námskeið í vöðvanuddi.
19. – 20. og 26. – 27. janúar.
23. – 24. febrúarog 1. – 2. mars.

Í klassísku vöðvanuddi er kennt að nudda bak, háls og höfuð og andlit.
Hámarksfjöldi nemenda á hvert námskeið er takmarkaður við 6 manns til að hægt sé að leiðbeina hverjum og einum sem best. Verð á hvert námskeið er 28.000 kr. Innifalið í námskeiðinu er DVD kennslumyndband, kennslumappa og olíubrúsi með ilmolíum.

Víða taka verkalýðsfélög þátt í kostnaði við námskeiðin. Hafið samband og fáið nánari upplýsingar í síma 822 0727 eða sendið póst til: gunnar@dao.is

Til baka