Fréttir

Kynning – kjarasamningar 2020

20 mar. 2020

Þar sem ekki er hægt að halda hefðbundna kynningarfundi hefur Sjúkraliðafélag Íslands útbúið kynningarefni
um efni kjarasamninga sem undirritaðir voru 9. mars síðastliðinn.

Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér þetta efni vel áður en atkvæði eru greidd um samningana. Launatöflur í kjarasamningi ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga verða sendar með tölvupósti til félagsmanna.

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga fer fram
frá kl. 13.00, 20. mars til kl. 16.00, 24. mars.

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning við ríkið fer fram
frá kl. 13.00 þann 24. mars til kl. 16.00, 27. mars.

Kynning á kjarasamningum 2020 – SLFÍ

Til baka