Fréttir

Horft til framtíðar – menntakerfið og heilbrigðisþjónustan 5. september

2 sep. 2019


Málþing um menntakerfið og heilbrigðisþjónustuna

Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til
árangurs. Þetta verða viðfangsefni fundar sem heilbrigðisráðherra boðar til 5. september
næstkomandi. Markmiðið er að fjalla um þessar mikilvægu stoðir heilbrigðiskerfisins í ljósi nýrrar
heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og aðgangur
ókeypis.
Staður og stund: Veröld, hús Vigdísar, 5. september kl. 17. – 19.
Umræðustjórar: Ævar Kjartansson og Magnús Karl Magnússon sem fá til sín í sófaspjall marga
góða gesti með víðtæka þekkingu og reynslu á þessum sviðum.
Fundarstjóri: Björg Magnúsdóttir.

                                                                Dagskrá:
Setning fundarins kl. 17.00
Ávarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra

17:10 Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni
Alma D. Möller landlæknir flytur framsögu

Sófaspjall: Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands (HÍ), Sandra
Bryndísardóttir Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands og Sigríður Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala

17:50 Vísindi
Engilbert Sigurðsson forseti læknadeildar HÍ flytur framsögu

Sófaspjall: Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við HÍ, Sunna Snædal, formaður
vísindasiðanefndar og Unnur Valdimarsdóttir prófessor við HÍ.

18:20 Forysta til árangurs
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala flytur framsögu.

Sófaspjall: Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, María Heimisdóttir,
forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur.

18:55 Heilbrigðisráðherra slítur fundi.

Streymt verður beint frá fundinum og verður útsendingin aðgengileg á vef heilbrigðisráðuneytisins www.hrn.is

Til baka