Fréttir

Ertu vaktavinnumaður og telur þig lækka í launum vegna betri vinnutíma í vaktavinnu?

1 mar. 2021

Ef þú ert vaktavinnumaður hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum eða Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
og telur þig lækka í launum vegna betri vinnutíma í vaktavinnu er mikilvægt fyrir þig að kynna þér
leiðbeiningar stýrihóps um hvenær hópar teljast lækka í launum (PDF).

Eftirfarandi spurningar þarft þú að spyrja þig:

Ef svör við þessum spurningum er JÁ þá er þér bent á að nota vaktareikninn og skoða hverju þú þurfir að breyta
í vinnutilhögun þinni til að halda sambærilegum launum.

Eftirfarandi spurninga þarf að svara með tilliti til vinnustaðarins:

  •  Hefur verið horft til jafnræðis í starfsmannahópi?
  • Hefur vinnuskipulag á mínum vinnustað verið endurskoðað með leiðarljós og markmið betri vinnutíma í vaktavinnu í forgrunni?

Ef svör við þessum spurningum er JÁ þá er þér bent á að nota vaktareikninn og skoða hverju þú þurfir að breyta
í vinnutilhögun þinni til að halda sambærilegum launum.

Ef svör við þessum spurningum er NEI eða þú ert óviss er þér bent á að hafa samband við þinn stjórnanda.

Ef þú telur þig vera hluta af hópi sem vinnur takmarkað utan dagvinnutíma og hópnum stendur ekki til boða
að vinna meira utan dagvinnumarka er þér bent á að ræða við þinn stjórnanda.

 

 

Til baka