Fréttir

Sjúkraliðar hvattir til að skrá sig í bakvarðasveit

25 okt. 2020

Landspítalinn hefur lýst yfir neyðarstígi og þarf að takast á við mönnunarvanda vegna COVID–19.

Leitað er til heilbrigðisstarfsfólks til að skrá sig bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Sjúkraliðar sem hafa aðstæður og eru reiðubúnir að starfa tímabundið til í heilbrigðisþjónustunni, með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eru hvattir til að skrá sig í bakvarðasveitina.

Með því að koma á fót bakvarðasveit eins og hér um ræðir, með lista yfir heilbrigðisstarfsfólk sem er reiðubúið til að hlaupa í skarðið þegar á reynir, standa vonir til þess að heilbrigðisstofnanir geti mannað í stöður með hraði þegar á þarf að halda.

Sjúkraliðafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands, heilbrigðisráðherra, landlæknir, sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóri standa saman að yfirlýsingu um bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.

Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu og jafnvel í fullt starf eða hlutastarf í allt að tvo mánuði ef hentar. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun.

Til baka