Ársskýrsla Vestmannaeyjadeildar 2021 – 2022

Aðalfundur svæðideildar Vestmannaeyja var haldinn 3. nóvember 2022 í Líknarsalnum við Faxastíg. Nokkuð vel var mætt á fundinn eða 20 félagsmenn. Mikil ánægja var hjá fundargestum með að koma aftur saman og eiga notalega kvöldstund. Fundarstjóri var Sigríður Gísladóttir. Einsi kaldi sá um matinn og boðið var upp á Villikryddað lambalæri, hunangs-rósmarinmerineraðar kalkúnarbringur. Meðlæti var ferskt sumarsalat, bakaðar Hesselback, steikaragrænmeti (sveppir, paprika, blaðlaukur, rauðlaukur, kúrbítur) rauðvínssósa og ljós villibráðsósa. Eftirréttur var svo karamellu og súkkulaði brownies með ís.

Stjórn deildarinnar frá vinstri, Donna Ýr, Fjóla Sif, Berglind, Andrea og Ásdís Emilía

Stjórn Svæðisdeild Vestmannaeyja 2022-2023
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir formaður
Andrea Guðjóns Jónasdóttir
Berglind Sigvarðsdóttir
Fjóla Sif Ríkhardsdóttir
Donna Ýr Kristinsdóttir

Uppstillingarnefnd:
Anna Guðný Magnúsdóttir Laxdal
Ragnheiður Lind Geirsdóttir

Trúnaðarmenn: 
Anna Guðný Laxdal Magnúsdóttir hjá sjúkradeild HSU Vestmannaeyjum
Alfa Markan Elfarsdóttir hjá Heilsugæslu HSU Vestmannaeyjum
Hulda Erna Eiríksdóttir á Hraunbúðum HSU Vestmannaeyjum

Kjaramálanefnd:
Hjördís Kristinsdóttir
Hafdís Sigurðardóttir

Jólaskemmtinefnd:
Andrea Guðjóns Jónasdóttir
Fjóla Sif Ríkhardsdóttir

Ferðanefnd: 
Bjartey Ósk Stefánsdóttir
Erna Sævarsdóttir

Sonja Finnsdóttir

Gestur fundarins var Sonja Finnsdóttir en hún er nýráðin iðjuþjálfi hjá Vestmannaeyjabæ. Þar sem Sonja er nýflutt til Eyja þá kynnti hún sig og sagði okkur frá sér og hvernig námi og starfi iðjuþjálfa er háttað. Hún ræddi einnig starf sitt hjá Vestmannaeyjabæ, sem er mjög áhugavert.

Nokkuð góð mæting var á síðasta aðalfund, sem við rétt náðum að halda,  en einu sinn voru fjöldatakmarkanir og fólk jafnvel hrætt við að fara á mannamót. Í byrjun nýs starfsárs var ennþá samkomutakmarkanir og við vorum farin að kunna þetta bara nokkuð vel.

Á Evrópudaginn 26. nóvember færðum við sjúkraliðar Landakirkju 100.000 krónur að gjöf til fjölskylduhjálpar í Vestmannaeyjum.

Ragnhildur Bolladóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Sjúkraliðafélaginu, kom til okkar 23. maí til að kynna styrktarsjóði félagsins. Fundurinn var fámennur, en góðmennur, og það voru skemmtilegar og líflegar umræður.

29. september var haldinn fundur þar sem farið var aðeins yfir stofnunarsamninga, einnig var ferðanefndin með kynningu á ferð sem farin verður til Amsterdam um miðjan apríl á næsta ári.

Stjórnin hefur fundað töluvert í gegnum fjarfundarbúnað, enda erum við orðnar vanar því eftir boð og bönn undanfarinna ára, en við höfum einnig hist á þremur fundum í raunheimum og rætt saman.

Formaður hefur farið á þrjá fundi á starfsárinu, tvo í Reykjavík og einn á Akureyri. Mikið er að gerast hjá félaginu og eru samningsaðilar félagsins farnir að undirbúa sig vel fyrir komandi kjaraviðræður. Gert er ráð fyrir að hiti verði í kjaraviðræðum og jafnvel að verkföll gæti verið í kortunum.

Töluverða breytingar hafa verið gerðar á rekstri svæðisdeildarnar. Er það gert til að samræma störf deildanna og auðvelda rekstur þeirra. Helsta breytingin er sú að formaður er nú valin fyrir hverja deild til tveggja ára í senn og aðrir í stjórn eru meðstjórnendur en ekki eru kosnir gjaldkerar, ritarar. Formaður fær viðskiptakort sem er í eigu SLFÍ þar sem greiddur verður kostnaður til að halda utan um rekstur deildarinnar.

Á haustönn útskrifaðist einn sjúkraliði frá FÍV og 10 á vorönn þannig að það hefur heldu betur bæst í hópinn hjá okkur.

Núútskrifaðir sjúkraliðar, frá vinstri, Bjartey Ósk, Erna, Sólveig, Sigurlína, Bjarný, Sigurlaug, Vala, Lilja kennari, Erna Sif, Rakel Ýr, Patrycja og Harpa

Í dag eru rúmlega 40 sjúkraliðar starfandi í Vestmannaeyjum og starfstöðvar HSU eru sjúkradeild, heilsugæsla, Hraunbúðir og Vestmannaeyjabær rekur dagdvöl.

Við í stjórninni höfum hist nokkrum sinnum á spjalli á samfélagsmiðlum og farið reglulega yfir stöðuna einnig höfum við hist til að fara yfir stærri mál.

Trúnaðarmenn deildarinnar ásamt formanni hittust og fóru yfir stofnanasamninga.

Úr stjórn gengu þær Áslaug Steinunn Kjartansdóttir og Dagmar Skúladóttir. Í þeirra stað komu Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, formaður og Donna Ýr Kristinsdóttir. Við þökkum öllum þeim sem hafa lagt vinnu sína í störf fyrir deildina kærar þakkir og óskum nýrri stjórn velfarnaðar í sínum störfum.

Stjórn Vestmannaeyjadeildar
Áslaug Steinunn Kjartansdóttir
Andrea Guðjóns Jónasdóttir
Fjóla Sif Ríkharðsdóttir
Berglind Ósk Sigvardsdóttir
Dagmar Skúladóttir

Til baka