Fréttir

Alvarlegur skortur á sjúkraliðum

23 apr. 2019

Í viðtali á visir.is bendir Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, á að alvarlegur skortur á sjúkraliðum á heilbrigðisstofnunum valdi miklu álagi á þá sem starfa í faginu. Hún bendir enn fremur á að kulnun hjá stéttinni hafi farið vaxandi og að fjölmjörg dæmi séu um að fólk hafi fallið úr vinnu.

„Það er grafalvarleg staða í kerfinu vegna skorts á sjúkraliðum og hefur ekki tekist að fylla í allar þær stöður sem þörf er á, sem er mikið áhyggjuefni. Það vantar einkum sjúkraliða á Landspítalann og þá er alvarlegur skortur á hjúkrunarheimilum. Loks hefur sjúkraliðum fækkað á Landspítalanum sem er einnig mikið áhyggjuefni,“ segir Sandra.

Hún segir að ástandið hafi alvarleg áhrif á þá sem nú starfa í faginu. „Vinnan verður erfiðari og þyngri og svo er gengið meira á fólk að taka aukavaktir sem veldur líka auknu álagi, Í svona ástandi finna fleiri fyrir kulnun en áður en við höfum fengið fjölmörg dæmi til okkar á skrifstofuna þar sem fólk er að detta úr vinnu vegna kulnunar,“ segir Sandra að lokum.

Hér má lesa fréttina á visir.is

Til baka