Fréttir

Vinnuverndarvikan 2011

11 okt. 2011

alt

Þema vikunnar er öryggi við viðhaldsvinnu

 og er sérstaklega horft til viðhalds véla og tækja.

 

 

Slagorð vikunnar er:   ,,ÖRUGGT VIÐHALD – ALLRA HAGUR”

 

 

Vinnuverndarvikan 24. – 28. október nk. er kjörið tækifæri fyrir stjórnendur og starfsmenn til efla það vinnuverndarstarf sem þegar er til staðar. Fyrirtæki eru hvött til að nýta sér upplýsingar um öryggi við viðhaldsvinnu sem er að finna á heimasíðu Vinnueftirlitsins undir flipanum Vinnuverndarvikan 2011. Á síðunni er bæði að finna efni tengt vinnuverndarvikunni og gerð áhættumats.  

Slóðin erwww.vinnueftirlit.is 

 

Vikan verður að þessu sinni notuð til að kynna fyrir atvinnulífinu áhættumat í tengslum við viðhaldsvinnu og þá sérstaklega hvað varðar viðhald véla og tækja.

Áhættumatið eins og það er kallað, heitir formlega skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Það er lögbundin skylda allra atvinnurekenda að sjá til þess að áhættumat sé unnið fyrir viðkomandi vinnustað, (sjá meðfylgjandi bækling: Áhættumat).

 

Í vinnuverndarvikunni eru ýmsir viðburðir, m.a. verður haldin ráðstefna þriðjudaginn 25. október á Grand Hótel Reykjavík kl. 13 -16. Á dagskrá verða fyrirlestrar og fyrirtæki sem skara fram úr í vinnuvernd verða verðlaunuð. 

Allir eru velkomnir. Aðgangur er ókeypis.

 

 

 

Vinnueftirlitið starfar samkvæmt Lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980, kölluð vinnuverndarlögin

 

Fjallað er um áhættumat starfa, öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði og vinnuverndar-starf í Reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum nr. 920/2006

 

Vinnuverndarlögin og allar reglugerðir sem heyra undir þau er að finna á heimasíðu Vinnueftirlitsins www.vinnueftirlit.is

Til baka