Fréttir

Verkfallsmiðstöð félaganna er í húsi BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík

15 okt. 2015

 

1. maí-2

Samninganefndir SFR, SLFÍ og LL funduðu allan gærdaginn með samninganefnd ríkisins þar sem einhverjar nýjar hugmyndir að samningi voru ræddar. Félögin hafa verið að fara yfir þessar hugmyndir og munu aftur funda með samninganefnd ríkisins síðar í dag.

Verkfallsmiðstöð félaganna er á 1. hæð í húsi BSRB að Grettisgötu 89. Fólk er hvatt til að líta þar við, hitta aðra félaga og sýna samstöðu í baráttunni.

Til baka