Fréttir

Vaktavinna og lýðheilsa

22 ágú. 2016

Vaktavinna og lýðheilsa er 30 klukkustunda heildstætt nám. Markmið þess er að miðla nýrri þekkingu á vaktstörfum og vaktskrám út frá rannsóknum á heilsu, einstaklingsmun, lífshlutverkum, vinnuumhverfi, félagslegri stöðu og þekkingu á kjarasamningsbundnum réttindum. Fjallað verður um nýjar áherslur í þróun málefna sem tengjast vaktavinnu og þjálfun veitt í skráningu og notkun vaktkerfa. Auk þess verður fjallað um forvarnir sem styðja við persónulega uppbyggingu og lýðheilsufræðileg markmið.

Námið er í þremur lotum og verður kennt um land allt. Skráning fer fram á vef Starfsmenntar.

Sjá nánar hér

Advakaogvinna

 

Til baka