Fréttir

Trúnaðarmannaskóli BSRB

17 ágú. 2016

Trunadarmenn

 

Trúnaðarmannanámskeiðin halda áfram hjá Félagsmálaskóla alþýðu nú í haust. Trúnaðarmannanámskeið I, 3. og 4. þrep verða kennd í september og október, en í nóvember heldur kennsla áfram í Trúnaðarmannanámskeiði II og þá verður 5. þrep kennt.

Meðal efnis í 3. þrepi eru upplýsingar um tryggingar í kjarasamningum og almannatryggingakerfinu. Farið verður yfir lög um vinnurétt og hvernig þau styðja kjarasamninga, einnig verður kynning á Vinnueftirlitinu og skyldum atvinnurekenda í vinnuvernd og trúnaðarmanna. Námskeiðið fer fram 12. – 14. september í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89.

Í október verður svo kennt í 4. þrepi en meðal efnis á þeim hluta námsins er hvernig sjálfstraust einstaklinga hefur áhrif á samskipti. Nemendur kynnast áhrifum skorts á sjálfstraust og ýmsar birtingamyndir þess og leiðum til að efla sjálfstraustið og hvaða aðstæður geta haft áhrif á minnkandi sjálfstraust. Kennd verða helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar tala á fyrir framan hóp og nemendur læra helstu atriði uppbyggingar á ritun ræðna. Námskeiðið fer fram 24. – 25. október í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89.

Trúnaðarmannanámskeið II heldur svo áfram í nóvember þegar kennt verður á 5. þrepi. Þar er kynning á helstu hagfræðihugtökum í daglegu lífi. Nemendur kynnast hvað þarf að hafa í huga við samningana. Farið í þróun eineltis á vinnustað. Skoðaðar eru mismunandi áróðursaðferðir og helstu reglur rökfærðinnar. Námskeiðið fer fram 7. – 9. nóvember í BSRB-húsinu að Grettisgötu 89

Allar frekari upplýsingar og skráning fer fram á vef Félagsmálaskólans.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Til baka