Fréttir

Stytting vinnuviku vaktavinnufólks í hnotskurn

2 feb. 2021

Umfangsmiklar breytingar taka gildi hjá vaktavinnufólki þann 1. maí næstkomandi, þegar vinnuvika þeirra styttist. Upplýsingar um þessar breytingar í hnotskurn má lesa á vefnum betrivinnutimi.is.

Vinnuvika vaktavinnufólks styttist úr 40 stundum í 36, eða úr 173,33 klukkustundum í 156 að meðaltali í mánuði. Þá getur starfsfólk sem er á þyngstu vöktunum búist við enn meiri styttingu, allt niður í 32 stundir.

Nú þegar vinnufyrirkomulagið verður endurskoðað verða einnig gerðar breytingar á því hvernig launin eru reiknuð út, launamyndunarkerfinu. Þar er þó skýrt markmið að enginn eigi að lækka í launum við breytingarnar og verður því fylgt eftir af fullum þunga af hálfu BSRB og Sjúkraliðafélags Íslands.

Þessum breytingum fylgir einnig spennandi tækifæri fyrir vaktavinnufólk sem ekki er í fullu starfshlutfalli. Þeir sem hafa verið í hlutastarfi í vaktavinnu eiga rétt á að hækka hlutfallið á móti styttingunni og hækka þar með í launum.

Fyrir þá sem eru að koma nýir að samtalinu um styttingu vinnuvikunnar í vaktavinnu má benda á þessa samantekt á vefnum betrivinnutimi.is, þar sem hægt er að afla sér helstu upplýsinga.

Til baka