Fréttir

Skýrsla um endurmat á störfum kvenna

9 sep. 2021

Lagt er til að aðgerðahópur stjórnvalda um launajafnrétti komi á fót þróunarverkefni um mat á virði starfa og þrói samningaleið um jafnlaunakröfur til að leiðrétta muninn. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um endurmat á störfum kvenna sem lögð hefur verið lögð fram til opin samráðs í Samráðsgátt stjórnvalda.

Í skýrslunni kemur fram að dregið hafi úr launamun á undangengnum árum, meðal annars fyrir tilstuðlan aðgerða á borð við starfsmat hjá sveitarfélögunum og jafnlaunavottun. Þessi tæki duga hins vegar ekki til þess að leiðrétta launamun sem stafar af kynbundinni skiptingu vinnumarkaðar í störf og atvinnugreinar sem skýrir að miklu leyti þann launamun sem enn er til staðar, líkt og launarannsókn Hagstofu Íslands staðfestir.

Í launarannsókn Hagstofunnar kemur fram að atvinnutekjur kvenna árið 2019 voru um 75 prósent af atvinnutekjum karla. Sé tekið tillit til vinnutíma eru konur með um 86 prósent af launum karla, en þessi munur er skilgreindur sem óleiðréttur launamunur.

Leiðréttur launamunur sýnir mun á atvinnutekjum kvenna og karla með tilliti til vinnutíma, menntunar, starfs og atvinnugreinar. Þá fá konur rúmlega 95 prósent af launum karla. Það eru samt margir annmarkar á þessum mælikvarða því ekki er tekið tilliti til persónubundinna eiginleika sem geta van- og ofmetið launamuninn, þá hækka konur síður í launum með aldri og starfsreynslu og að lokum fangar mælingin ekki ýmsa kynbundna mismunun á vinnumarkaði eins og möguleika á stjórnunarstöðum og þessháttar.

Hér má nálgast skýrsluna Verðmætamat kvennastarfa – Tillögur starfshóps forsætisráðherra um endurmat á virði kvennastarfa.

Til baka