Samkomulag samþykkt.
4 apr. 2014
Samkomulag Sjúkraliðafélags Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga,
fyrir hönd Garðabæjar var kynnt á fjölmennum fundi meðal sjúkraliða á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ í dag 4. apríl.
Að kynningu lokinni var kosið um samkomulagið í leynilegri kosningu.
Á kjösrskrá voru 18 sjúkraliðar. Atkvæði greiddu 13. Já sögðu 12 nei sagði einn.
Samkomulagið er því samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða.
Áður boðuðu verkfalli sem hefjast átti 17. apríl nk. er því aflýst