Fréttir

Óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

11 mar. 2020

Leitað er til heilbrigðisstarfsfólks til að mynda bakvarðasveit til tímabundinnar aðstoðar í heilbrigðiskerfinu.

Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks úr hópi sjúkraliða í svokallaða bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.
Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

Fyrirsjáanlegt er að mikilvægar heilbrigðisstofnanir muni á næstunni þurfa að takast á við mönnunarvanda vegna COVID–19 veirunnar vegna veikindafjarvista eða fjarvista heilbrigðisstarfsfólks sem þarf að sitja tímabundið í sóttkví, líkt og þegar eru dæmi um. Með því að koma á fót bakvarðasveit eins og hér um ræðir, með lista yfir heilbrigðisstarfsfólk sem er reiðubúið til að hlaupa í skarðið ef á reynir, standa vonir til þess að heilbrigðisstofnanir geti mannað í stöður með hraði þegar á þarf að halda.

Sjúkraliðafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands,  heilbrigðisráðherra, landlæknir, sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóri standa saman að yfirlýsingu um bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar og er hún hér meðfylgjandi. Stefnt er að því að ræða við félög fleiri heilbrigðisstétta á næstu dögum um mögulega aðkomu þeirra að bakvarðasveitinni.

Um skráningu í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar:
Heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu og jafnvel í fullt starf eða hlutastarf í allt að tvo mánuði ef hentar. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun. Skráningarformið er aðgengilegt á vef heilbrigðisráðuneytisins, www.hrn.is.

 

 

Til baka