Fréttir

Níu verkefni í vinnslu eftir samráðsfundi

23 ágú. 2018

stjornarradid copyNíu verkefni sem rædd hafa verið á samráðsfundum stjórnvalda með aðilum vinnumarkaðarins eru enn í vinnslu en þremur hefur verið lokið. Þetta kemur fram í yfirliti sem forsætisráðuneytið hefur birt.

Stjórnvöld boðuðu aðila vinnumarkaðarins til fyrsta samráðsfundarins í desember 2017, fljótlega eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum. Alls hafa verið haldnir tíu sambærilegir fundir síðan. Fundina hafa setið forsvarsmenn heildarsamtaka á vinnumarkaði, m.a. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, auk  ríkissáttasemjara og fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar á fundunum hafa verið forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, en auk þeirra hafa félags- og jafnréttismálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra sótt fundina eftir þörfum.

Þau þrjú verkefni sem leitt hafa af samtalinu og telst lokið eru hækkun atvinnuleysistrygginga, hækkun hámarksgreiðslna Ábyrgðarsjóðs launa og niðurlagning kjararáðs.

Forsætisráðuneytið segir eftirfarandi níu mál enn í vinnslu:

  1. Endurskoðun tekjuskattskerfis
  2. Frumvarp um nýtt fyrirkomulag launa kjörinna fulltrúa
  3. Hagsveifluleiðrétt atvinnuleysistryggingagjald
  4. Úttekt á Fræðslusjóði
  5. Starfshópur um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga
  6. Upptaka launaupplýsinga frá öllum launagreiðendum að norskri fyrirmynd
  7. Skattlagning greiðslna úr sjúkrasjóðum
  8. Yfirlýsing vegna kjarasamninga við BHM
  9. Tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar
Dagskrá og gögn eru öllum opin 

Forsætisráðuneytið hefur einnig gert opinbera dagskrá allra fundanna, auk allra gagna og kynninga sem hafa verið lögð fram

 

(Frétt BSRB)

Til baka