Fréttir

Kjarasamningur við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu samþykktur

21 sep. 2020

Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu lauk klukkan 16.00 þann 21. september 2020. Á kjörskrá voru 356 og þar af kusu 210 eða samtals 59%.

Atkvæði féllu með eftirfarandi hætti:

  • 76.19% samþykktu samninginn.
  • 20.00% höfnuðu samningnum.
  • 3.81% tóku ekki afstöðu.

Kjarasamningur Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og Sjúkraliðafélags Íslands er því samþykktur af hálfu félagsins.

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar ber merki um ríka stéttarvitund sjúkraliða og hve kjarasamningurinn er viðamikill. Þá er hið nýja launamyndunarkerfi sem snýr að styttingu á vinnutíma fyrir vaktavinnufólk framandi kerfisbreyting sem hefur reynst torvelt að útskýra.

Kjaramálanefnd þakkar fyrir góða þátttöku í atkvæðagreiðslunni um kjarasamninginn.

Til baka