Fréttir

Málþing um dánaraðstoð og líknarmeðferð

3 sep. 2018

download copy Föstudaginn 21. september kl. 13:00-17:00 stendur Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Lífsvirðingu fyrir málþingi sem ber yfirskriftina

Dánaraðstoð og líknarmeðferð – algjörar andstæður eða…?

Dánaraðstoð og líknandi meðferð er oft stillt upp sem andstæðum í stað þess að líta á þær sem órofa heild sem vinni saman með hag einstaklings í huga. Á málþinginu taka til máls sérfræðingar í dánaraðstoð frá Belgíu og Hollandi. Málþingið fer fram bæði á íslensku og ensku.

DAGSKRÁ

Kl. 13:00 Málþing sett
Kl. 13:10 Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
– The right to die/Rétturinn til að deyja
Kl. 13:35 Reynslusaga
Kl. 13:45 Svanur Sigurbjörnsson
– Autonomous will and objective evaluation – should
physician-assisted dying go beyond the altruism of
hurried death of the dying?/Sjálfræði og hlutlægt mat:
Ætti að leyfa dánaraðstoð öðrum en þeim deyjandi?
Kl. 14:15 Kaffi
Kl. 14:30 Rob Jonquire
– Euthanasia & palliative care, a chicken & egg problem?
How the Dutch solved it/Dánaraðstoð og líknandi
meðferð, gátan um eggið og hænuna?: Hvernig
Hollendingar leystu það.
Kl. 15:10 Reynslusaga
Kl. 15:20 Jan Bernheim
– Euthanasia embedded in palliative care: The Belgian
experience/Dánaraðstoð sem hluti af líknandi meðferð:
Reynsla Belgíu
Kl. 16:00 Panelumræður
Kl. 16:25 Samantekt og lokaorð

Fyrirlesarar eru,

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hefur verið Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2016–2017 og Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2017 og formaður þingflokks Pírata síðan 2017. Hún er með BA-próf í alþjóða- og Evrópulögum frá Háskólanum í Groningen og MA-próf í mannréttindum og alþjóðlegum refsirétti frá Háskólanum í Utrecht.

Svanur Sigurbjörnsson er læknis- og heimspekimenntaður. Hann er sérmenntaður í lyflækningum og eiturefnafræðum og hefur starfað lengst af við heilsugæslu og á bráðamóttöku bæði hérlendis og í Bandaríkjunum. Hann á að baki nám í heimspeki og listum og fæst nú við skrif MA-ritgerðar í hagnýttri siðfræði við HÍ. Svanur er aðjúnkt í siðfræðikennslu við Læknadeild HÍ og formaður siðfræðiráðs Læknafélags Íslands frá árinu 2015. Hann sat í stjórn Siðmenntar árin 2005-2013 og kom á fót athafnaþjónustu Siðmenntar, auk fleiri starfa. Svanur talar sem óháður fagaðili á málþinginu.

Hollendingurinn Rob Jonquire starfaði sem heimilislæknir frá 1972-1985. Árið 1999 tók hann að sér starf framkvæmdastjóra félagsins um dánaraðstoð í Hollandi (NVVE). Hann var í forystu í baráttunni fyrir sjálfsákvörðunarrétti fólks í Hollandi við setningu laga um dánaraðstoð þarlendis árið 2001. Rob hefur sinnt starfi framkvæmdastjóra World Federation of Right to Die Societies síðan 2008.

Prófessor Dr. Jan Bernheim er krabbameinslæknir og prófessor emeritus í læknasiðfræði. Hann hefur birt yfir 100 alþjóðlega ritrýndar greinar um allt frá frumudauða og myndun hormónakrabbameins til umræðu um lífslok. Hann var einn af stofnendum samtakanna um líknandi meðferð á meginlandi Evrópu árið 1979. Jan vinnur við rannsóknir á myndun krabbameins, læknisfræðilegri siðfræði, lífslokamálum og gæðum lífs í rannsóknarteyminu End-of-Life Care Research Group við háskólann í Brussel og Liège.

Fundarstjóri er Telma Tómasson, fjölmiðlakona.

Málþingið verður haldið í húsnæði Endurmenntunar í Dunhaga 7 og kostar 4000 kr.

NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ENDURMENNTUN.IS EÐA Í SÍMA 525 4444

Til baka