Fréttir

Lokað fyrir heimsóknir á skrifstofu SLFÍ vegna fjölgunar Covid-19 smita

16 nóv. 2021

Vegna mikillar fjölgunar greindra smita af COVID-19 á undanförnum dögum hefur verið ákveðið að loka fyrir heimsóknir á skrifstofu SLFÍ um óákveðinn tíma.

Viljum við því beina þeim tilmælum til félagsmanna að þeir nýti sér rafræna þjónustuþætti sem finna má á heimasíðu félagsins:
https://www.slfi.is/, nota mínar síður, hringi í síma 553 9493 og 553 9494, og sendi tölvupóst á slfi@slfi.is.

Öllum erindum og fyrirspurnum verður svarað eins fljótt og unnt er á þjónustutíma skrifstofunnar og á símatíma frá kl. 9:00 til 16:00 alla virka daga.

Kjaramál
Hægt er að hafa samband við formann eða framkvæmdastjóra með því að senda tölvupóst á sandra@slfi.is og gunnaro@slfi.is
Einnig er fyrirspurnum svarað í síma 553 9493 og 553 9494

Orlofsmál
Á orlofsvef Sjúkraliðafélagsins er hægt að skoða og bóka orlofskosti sem eru í boði fyrir félagsmenn.
Fyrirspurnir og ábendingar má senda á netfangið slfi@slfi.is

Mikilvægt er að þeir félagsmenn sem nýta sér orlofshús félagsins gæti sérstaklega vel að þrifum þeirra. Bent er á að engar sértækar aðgerðir eru á þrifum húsanna.
Leigjendur sjálfir verða að tryggja smitvarnir á meðan dvöl stendur auk þess að sjá til þess að allir fletir og yfirborð séu þvegnir með sápu eða hreinlætisefnum og síðan sprittaðir í kjölfarið.

Þeir sem eru í áhættuhóp/sóttkví eða finna til einkenna vegna COVID -19 svo sem hita, hósta, bein- vöðvaverkja eða þreytu er beðnir um að fara ekki í orlofshús félagsins.
Orlofssjóður endurgreiðir félagsmönnum að fullu ef hætt er við dvöl vegna COVID-19 faraldursins.

Námsmat
Formaður fræðslunefndar sér um umsýslu á námsmati sjúkraliða. Félagsmenn eru beðnir um að senda viðurkenningaskjöl um nám og símenntun rafrænt ragnhildur@slfi.is, fyrirspurnum er svarað í síma 553 9493 og 553 9494

Styrktarsjóður – sjúkradagpeningar
Sótt er um alla styrki sem snúa að heilsufari og forvörnum á heimasíðu Styrktarsjóðs BSRB á “mínum síðum”.
Mikilvægt er að öll viðeigandi fylgiskjöl séu send með umsókninni. Þegar sótt er um sjúkradagpeninga þurfa eftirfarandi gögn að fylgja:

Vottorð vinnuveitanda
12 síðustu launaseðlar (hægt að sækja af heimabanka eða hjá atvinnurekanda)
Staðfesting frá RSK um nýtingu persónuafsláttar (þjónustuvefur RSK.IS)
Læknisvottorð sem staðfestir óvinnufærni á því tímabili sem sótt er um sjúkradagpeninga.
Hægt að ná í starfsmenn sjóðsins í síma 525 8380 og með tölvupósti postur@styrktarsjodur.bsrb.is

Starfsmennta- og Starfsþróunarsjóður
Hægt er að sækja um styrki vegna náms, námskeiðs eða ráðstefnu á heimasíðu félagsins https://www.slfi.is/ “mínar síður”.
Mikilvægt er að viðeigandi fylgiskjöl og reikningar fylgi umsókninni. Fyrirspurnir má senda á netfangið sigga@slfi.is og hringja í síma 553 9493 og 553 9494.

Aðrar áhugaverðar upplýsingar:
Leiðbeiningar til stjórnenda vegna COVID-19
Leiðbeiningar til sveitarfélaga vegna COVID-19
Óskað er eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

Til baka