Lífeyrismál við starfslok hjá Brú lífeyrissjóði
16 ágú. 2018
Brú lífeyrissjóður heldur námskeið um lífeyrisréttindi við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í húsakynnum sjóðsins, Sigtúni 42, Reykjavík, miðvikudaginn 22. ágúst nk.
Á námskeiðinu verður farið almennt yfir lífeyrisréttindi sjóðfélaga, hvar upplýsingar um réttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.
Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því. Takmarkaður fjöldi sæta eru í boði á hvert námskeið og nauðsynlegt að sjóðfélagar skrái þátttöku sína. Námskeið fyrir hverja deild tekur u.þ.b. klukkutíma.
Næsta námskeið verður haldið miðvikudaginn 22. ágúst nk.
- kl. 16.30: B deild Brúar lífeyrissjóðs – Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar – Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
kl. 17.30: A deild
kl. 18.30: V deild
B deild – LsRb – LSK kl. 16.30
A deild kl. 17.30
V deild kl. 18.30