Opinberir starfsmenn sýna samstöðuna á baráttufundi

Opinberir starfsmenn sætta sig ekki við áframhaldandi skeytingarleysi viðsemjenda nú þegar tíu mánuðir eru liðnir frá því kjarasamningar losnuðu.
Félagar í BSRB, Bandalagi háskólamanna (BHM) og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) munu fjölmenna á fund í Háskólabíói klukkan 17 í dag
til að krefjast þess að ríki og sveitarfélög gangi tafarlaust til samninga við starfsfólk sitt.

Á sama tíma munu félagsmenn BSRB, BHM og Fíh koma saman á baráttufundum víða um land og fylgjast með streymi frá Háskólabíói. „Við höfum nú verið í tíu mánuði án kjarasamnings og hefur þótt skorta verulega á samningsvilja viðsemjenda okkar. Samstaðan hefur verið sterkasta vopn opinberra starfsmanna í gegnum tíðina og það er kominn tími til að við sýnum viðsemjendum okkar það. Nú munum við fylgja eftir okkar kröfum með aðgerðum,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Á baráttufundinum mun forystufólk opinberra starfsmanna kanna hug félagsmanna til þess að hefja þegar í stað undirbúning frekari aðgerða til að knýja viðsemjendur til þess að ganga
til samninga.

Ræðumenn verða:

  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
  • Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, fyrir hönd BHM.
  • Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
  • Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
  • Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis.

Milli ávarpa munu Jónas Sig og og hljómsveit ásamt Reykjavíkurdætrum taka nokkur lög.

Búið er að skipuleggja fundi á landsbyggðinni þar sem tekið verður við streymi frá fundinum í
Háskólabíói. Félagar í aðildarfélögum BSRB, BHM og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
velkomnir!

Akureyri: Hof, Strandgötu 12
Ísafjörður: Skrifstofa FOSVest, Aðalstræti 24, 3.hæð
Grundarfjörður: Skrifstofa Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu, Borgarbraut 1a
Borgarnes: Grunnskólinn í Borgarnesi
Reykjanesbær: Skrifstofa Starfsmannafélags Suðurnesja, Krossmóar 4a
Sauðárkrókur: Kaffistofa Skagafjarðarveitna
Háskólinn á Hólum: Stofa 302

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði fyrir fundinn.

Til baka