Fréttir

Katla félagsmannasjóður

12 feb. 2021

Búið er að opna fyrir umsóknir í Kötlu félagsmannasjóð sem er sjóður þeirra stéttarfélaga BSRB og félagsmanna þeirra
sem aðild eiga að kjarasamningum við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Félagsmenn sækja um á rafrænni umsóknarsíðu sjóðsins og leggja fram viðeigandi upplýsingar svo sem síðasta launaseðil viðmiðunarárs,
starfshlutfall og starfstíma yfir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2020.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar. Greitt verður úr sjóðnum í apríl, nánari upplýsingar á katla.bsrb.is

Sækja um hér: minarsidurkatla.bsrb.is

Til baka