|
Til fróðleiks fyrir þá er málið varðar!
SLFÍ hefur tekið saman eftirfarandi upplýsingar varðandi greiðslu á launatengdum gjöldum eða nýjum greiðslum sem atvinnurekanda ber að greiða af félögum í Sjúkraliðafélagi Íslands. Sett hefur verið á stofn bókunar- og innheimtumiðstöð sem mun annast móttöku skilagreina fyrir félög innan BSRB. Greiða ber öll gjöld inn á reikning hjá Íslandsbanka, reikningsnúmer 0516-04-760468, kennitala 440169-0159. Farið er fram á að skilgreinar séu á rafrænu formi. Starfsmenntunarsjóður BSRB Til Starfsmenntunarsjóðs BSRB greiðir ríkið og þeir sem fylgja samningum þess 0,22% af öllum launum. Sveitarfélögin og Reykjavíkurborg greiða hinsvegar 0,30% af öllum launum. Sjóðurinn er til húsa í Arnarhvoli v/Lindargötu, 150 Reykjavík. Styrkir úr sjóðnum til sjúkraliða eru afgreiddir á skrifstofu Sjúkraliðafélagsins Grensásvegi 16, R. Tölvupóstfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- Fax 553 9492. Orlofsheimilasjóður SLFÍ Iðgjald atvinnurekanda til Orlofsheimilasjóðs SLFÍ er 0,30% af öllum launum. Sveitarfélögin greiða 0.45% í Orlofsheimilasjóð. Starfsþróunarsjóður SLFÍ Til Símenntunar og starfsþróunarsjóðs félagsins greiðir atvinnurekandi 0,65% af öllum launum.
Sveitarfélögin greiða 0.50% í Starfsþróunarsjóð.
Í bókun 3 með samningi félagsins við Reykjavíkurborg er samkomulag um sömu hækkun á framlagi, en því skuli ráðstafað í samráði við félagið. Stéttarfélagsgjald SLFÍ Félagsgjald sjúkraliða til Sjúkraliðafélags Íslands er 1,4% af öllum launum. Endurhæfingarsjóður Framlag atvinnurekanda til Endurhæfingarsjóðs er frá 1. júní 2008 0,13% af öllum launum sjúkraliða. Fjölskyldu og styrktarsjóður BSRB Gjald til Fjölskyldu- og styrktarsjóðs opinberra starfsmanna er 0,75%, greitt af öllum launum. Umsjónarmaður sjóðsins er Ólafur B. Andrésson. Sjóðurinn er í húsnæði BSRB að Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, sími 525 8380. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins Til A deildar LSR greiðir atvinnurekandi 11,5% en launþegi 4% af öllum launum. Til B deildar LSR greiðir atvinnurekandi 8% en launþegi greiðir 4%. Greitt er til B deildar LSR af föstum mánaðarlaunum, vaktaálagi og orlofs- og desemberuppbót. Til þess að starfsmenn öðlist rétt til aðildar að Lífeyrissjóðum ríkisstarfsmanna þarf atvinnurekandi að ganga frá kjarasamningi við stéttarfélag opinberra starfsmanna. Heimilisfang LSR er Engjateigi 11, 105 Reykjavík, sími 510 6100. Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga Starfar eftir sömu meginreglum og LSR. Sjóðurinn býður upp á valmöguleika sem sjóðsfélagar þurfa að kynna sér. Iðgjöld til sjóðsins eru 12% framlag atvinnurekanda og 4% framlag launþega. Atvinnurekandi greiðir til B deildar Lífeyrissjóðs Reykjavíkur 8% og starfsmaður 4% af föstum mánaðarlaunum, vaktarálagi og orlofs- og desemberuppbót. Heimilisfang sjóðsins er Sigtún 42, 105 Reykjavík, sími 540 0700. Framlag í séreignasjóð Greiði starfsmaður í séreignasjóð 2 eða 4% greiðir vinnuveitandi viðbótarframlag 2% á móti framlagi inn á þann reikning eða sjóð sem starfsmaðurinn hefur treyst til að ávaxta séreignarframlag sitt. Kjarasamningsbundnar tryggingar Launagreiðandi þarf að kaupa tryggingu hjá tryggingafélagi m.t.t. ákv. 7. kafla um tryggingar skv. kjarasamningi félagsins. Samkvæmt honum eru starfsmenn tryggðir vegna örorku eða dauða sem hlýst af slysförum, hvort heldur það gerist í eða utan starfs. Tryggingakaflinn í samningi félagins við fjármálaráðherra og þeirra sem eru með hliðstæðan samning við félagið breyttist 1. júní 2005, skv. honum hækkuðu bætur verulega vegna slyss í starfi og/eða á beinni leið til og frá vinnu.
|