Fréttir

Grein formanns Sjúkraliðafélags Íslands í Fréttablaðinu í dag

28 maí. 2015

Sjúkraliðar styðja baráttu stétta fyrir bættum kjörum

 
AR-705289983
Samningsréttur stétta eru réttindi sem bera þarf virðingu fyrir. Verkföll eru neyðaréttur þeirra sem hann hafa, til að knýja á viðsemjanda þegar ekkert þokast í samningsátt. Verkföll eru boðuð að alvarlega íhuguðu máli félaga og félagsmanna, en hafa aldrei verið boðuð í flokkspólitískum tilgangi. 

Stéttarfélög hafa það m.a. sem aðalmarkmið að ganga fram fyrir skjöldu og koma vinnuveitanda í skilning um að félagsmenn vinni ekki fyrir smánarkjör. 

Opinberir starfsmenn og félög á almenna vinnumarkaðnum hafa af fullri einurð tekið þátt í uppbyggingu landsins eftir kollsteypu, m.a. með mjög lágstemmdum kjarasamningum í upphafi árs 2014. Ríkið/fjármálaráðuneytið hefur síðan samið við ákveðnar stéttir um verulegar launahækkanir, sem mjög eðlilegt er að aðrar stéttir hafi til viðmiðunar þegar þeirra kröfur eru mótaðar. 
Á almenna vinnumarkaðnum hafa fyrirtæki og bankar skilað gríðarlegum hagnaði og greitt út milljarða í arðgreiðslur, þannig að á þeim markaði er eðlilegt að kröfur um kjarabætur séu miðaðar við þessa jákvæðu stöðu. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa gortað af því opinberlega að ríkisreksturinn sé í verulegum uppgangi og því er eðlilegt að opinberir starfsmenn njóti gæðanna og einnig þeirra fórna sem þeir tóku á sínar herðar. Opinberir starfsmenn nutu ekki hins meinta góðæris.

Virðum baráttu annarra
Brýnt er að vinnufélagar þeirra stétta sem eru í verkfalli styðji félagana með ráðum og dáð, sýni baráttu þeirra virðingu og gangi ekki í störf þeirra. Mikilvægi þessa þekkja fáir jafn vel og sjúkraliðar, sem ítrekað hafa neyðst til að berjast fyrir bættum kjörum m.a. í átta vikna verkfalli 1994. Á þessum tíma reyndi verulega á samheldni og baráttuanda sjúkraliða, en erfiðast þótti þeim að takast á við samstarfsstétt sína, sem gekk í störf þeirra, tók aukavaktir og reyndi á allan hátt að draga úr mætti verkfallsins. 
Viðkvæðið var að óábyrgt væri að heilbrigðisstarfsmaður gengi svo langt að ætla stjórnendum heilbrigðisstofnana að draga úr þjónustu vegna kjarabaráttu. Svo rammt kvað að, að sjúkraliðar áttu víða erfitt með að koma aftur til vinnu, svo mikil var heiftin og andúðin. 

Í ljósi langvinnra verkfalla fjölda heilbrigðisstétta eru greinilega breyttir tímar og því brýnir Sjúkraliðafélag Íslands sjúkraliða til þess að sýna vinnufélögum sínum fyllsta stuðning.

Sjúkraliðafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu þeirra stétta sem berjast fyrir betri kjörum. Sjúkraliðar! Berum virðingu fyrir baráttu annarra. Sýnum þeim virðingu í verki með því að neita að taka að okkur þau störf sem annars er sinnt af þessum stéttum.

Til baka