Fréttir

Sandra gefur kost á sér til endukjörs

7 feb. 2021

Kæru sjúkraliðar,

Það hafa verið forréttindi að vera forystukona ykkar síðastliðin þrjú ár. Þessi ár hafa sannarlega verið viðburðarík. Fyrir utan erfiða kjarasamninga sem tóku rúmt ár brast á með fyrirvaralausum heimsfaraldri sem lagðist þungt á heilbrigðiskerfið. Ég kynntist því af eigin raun þegar ég starfaði sem bakvörður á kvöldvöktum á Covid-deild Landspítalans þegar kjarasamningum sleppti. Við þær aðstæður varð ég snortin af þeim mikla samhug sem skapaðist innan stéttarinnar. Sjálf var ég mjög stolt af ykkar framgöngu, og stolt af mínu félagi.

Á þessum þremur árum hafa mikilvægir áfangar náðst fyrir sjúkraliða. Auk kjarasamninga, sem munu skila um 24% hækkun að meðaltali í lok samningstímans, náðist sögulegur áfangi um styttingu vinnuvikunnar. Annað sögulegt skref var stigið með samþykkt á kröfu okkar um fagnám á háskólastigi. Tveggja ára diplómanám fyrir sjúkraliða mun nú hefjast í haust, 2021, við Háskólann á Akureyri. Það var sömuleiðis mikill áfangi að ná fram gömlu baráttumáli sjúkraliða um fagráð á heilbrigðistofnunum, þar sem sjúkraliðar munu í fyrsta sinn í Íslandssögunni standa jafnfætis öðrum hjúkrunarstéttum um mótun hjúkrunarstefnu. Samhliða vinnu að þessu hef ég lagt mig fram um að koma sjúkraliðum á kortið sem burðarstétt og gera félagið sýnilegt í fjölmiðlum og innan kerfisins.

Það var ekki sjálfgefið á sínum tíma að ég gæfi kost á mér til formennsku í Sjúkraliðafélagi Íslands. Það er mjög krefjandi starf, og á köflum erfitt. Þessi ár hafa hins vegar verið gefandi, og við höfum náð miklum áföngum. Ég er sérstaklega þakklát fyrir allan þann stuðning sem ég hef notið í ykkar röðum, og hvatningarnar sem ég hef fengið frá sjúkraliðum um allt land á erfiðum augnablikum. Ég nýt þess líka að eiga gott samstarfsfólk, bæði á skrifstofu félagsins, meðal félagsstjórnar, trúnaðarmanna og í deildunum um land allt.

Í dag er ólokið ýmsum brýnum og mikilvægum verkefnum sem við höfum í sameiningu hafið. Við þurfum að ná fram fjölgun sjúkraliða og nýrri mönnunarstefnu sem við höfum lagt áherslu á. Við þurfum að halda áfram baráttunni fyrir því að kerfið, ekki síst stjórnendur stofnana, viðurkenni aukna færni og símenntun sjúkraliða með aukinni ábyrgð og nýjum tækifærum til starfssframa. Umfram allt þarf stéttin að halda áfram sókn sinni til betri kjara í formi hærri launa og heilsusamlegra vinnuumhverfis.

Ég hef metnað til að takast á við þessi verkefni, og önnur fleiri, sem bíða. Þess vegna hef ég, eftir talsverða umhugsun og mikla hvatningu frá sjúkraliðum víðs vegar að, ákveðið að gefa kost á mér til endurkjörs formanns í Sjúkraliðafélagi Íslands.

Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.

Til baka