16. júlí 2010
Stuðningsyfirlýsing Sjúkraliðafélags Íslands við kjarabaráttu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Sjúkraliðafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir leiðréttingu á launakjörum sínum. Kjarabarátta þeirra snýst um að störf vaktavinnufólk verði metin í samræmi við álag og ábyrgð. Kjarabarátta slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er barátta fyrir sanngjörnu mati á störfum fólks sem vinnur afbrigðilegan vinnutíma undir miklu álagi að aukinni velferð landsmanna. Sjúkraliðafélag Íslands skorar á forystumenn Samtaka sveitarfélaga að sýna kjark, drengskap og fyrirhyggju og ganga nú þegar að kröfum slökkviliðsmanna.