Fréttir

Fréttatilkynning –

26 mar. 2015

Sameiginleg kröfugerð SFR stéttarfélags í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna.

 

Í dag lögðu samninganefndir SFR stéttarfélags í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna fram sameiginlega kröfugerð félaganna í komandi kjarasamningum. Félögin þrjú eru stærstu félögin innan BSRB sem semja við ríkið og hópurinn sem samið verður fyrir telur rúmlega 5200 manns. Innan Landssambands lögreglumanna eru rúmlega 600 félagsmenn sem allir starfa hjá ríkinu, Sjúkraliðafélag Íslands semur fyrir um 1100 starfsmenn hjá ríkinu og innan SFR stéttarfélags eru rúmlega 3500 manns hjá ríkinu. Fundur með samninganefnd félaganna þriggja og samninganefnd ríkisins fór fram í húsnæði ríkissáttasemjara í dag.

Kröfugerðin skiptist í tvo hluta, annars vegar er um að ræða sameiginlegar kröfur félaganna og hins vegar eru sérkröfur hvers félags fyrir sig. Meginkröfurnar eru eftirfarandi:

  • Að hækka laun
  • Að stytta vinnuvikuna
  • Að tekin verði upp ný launatafla
  • Útrýma kynbundnum launamun
  • Endurskoða vaktavinnukaflann
  • Laun verði jöfnuð/leiðrétt á milli opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum markaði
  • Tekin verði upp launaþróunartrygging
  • Að samið verði um framlag til sérstakra leiðréttinga eða til endurnýjunar stofnanasamninga
  • Unnið verði að sérkröfum hvers félags

 

Árna Stefán Jónsson formaður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu, s: 892 9644

Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands, s: 896 8330

Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna, s: 898 8184

 

 

Samninganefndirnarthrjarfyrirutanskrifstofusattasemjara

 

Sameinaðar samninganefndir SLFÍ, SFR og LL

 

Fjolmennurfundur-samninganefndir3jafelagaasamtsamninganefndrikisins

 

Samninganefndir að störfum 

 

FormennSnorriMagnussonArniStefanJonssonogKristinAGudmundsdottir

 

Formenn stéttarfélaganna, Snorri Magnússon form. LL 

Árni Stefán Jónsson, form. SFR 

og Kristín Á. Guðmundsdóttir, form. SLFÍ

SamninganefndrikisGunnarBjornssonfyrirmidju

 

 

Samninganefnd ríkisins. Gunnar Björnsson, form.

samninganefndar fyrir miðju 

 

 

Til baka