Fréttir

Fræðsluefni um styttingu vinnuvikunnar í vaktavinnu

28 jan. 2021

Samið var um styttingu vinnuvikunnar í kjarasamningum aðildarfélaga BSRB og annarra stéttarfélaga opinberra starfsmanna í mars 2020. Hjá vaktavinnufólki fylgja þessari byltingu í vinnutíma ákveðnar breytingar á launamyndunarkerfi sem gott er að kynna sér.
Vinnuvika vaktavinnufólks mun að lágmarki styttast úr 40 stundum í 36. Hún mun styttast enn meira hjá þeim sem eru á þyngstu vöktunum, allt niður í 32 stundir.

BSRB og aðrir samningsaðilar standa að vefnum  betrivinnutimi.is þar sem settar hafa verið inn leiðbeiningar fyrir starfsfólk og stjórnendur svo allir geti kynnt sér þær breytingar sem framundan eru. Þar sem viðbúið er að meira efni bætist við væri gott að skrá sig í áskrift á vefnum hér.

Fyrir þá sem vilja fá yfirlit í einum pakka má benda á stutt PDF-skjal með helstu upplýsingum.

Þeir sem frekar kjósa að horfa geta horft á stutt kynningarmyndband um styttinguna hjá vaktavinnufólki hér að neðan:

Hér er svo farið yfir umbótasamtal á vinnustaðnum:

Hér er fjallað um ávinning kerfisbreytinga:

Hér er síðan myndband um markmið og leiðarljós með styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki:

Til baka