Fréttir

Ferðaávísun á frábært sumar

18 jún. 2020

Á orlofsvef Sjúkraliðafélags Íslands er nú hægt að kaupa ferðaávísun sem veitir félagsmönnum aðgang að sértilboðum á gistingu um allt land. Samið hefur verið við tugi gististaða um að bjóða okkur allra bestu kjörin.

Hér getur þú skoðað tilboðin og valið þann gististað sem þér hentar. Þegar þú hefur fundið spennandi valkost smellir þú á „Kaupa“. Þegar þú gengur frá greiðslu fyrir ferðaávísunina drögum við tiltekna upphæð frá tilboðsverðinu.

Félagið niðurgreiðir ferðaávísunina um 20% af valinni upphæð að hámarki kr. 13.000 á almanaksári. Við hverja niðurgreiðslu eru teknir punktar en þó aldrei fleiri en 4 miðað við hámarksnýtingu.

Þú pantar gistingu þegar þér hentar og greinir frá því að þú hyggist greiða fyrir gistinguna með ferðaávísun frá félaginu. Þegar þú mætir á staðinn nægir að gefa upp kennitölu. Ef hótelið eða gistiheimilið sem þú valdir þér er fullbókað, þegar þú hyggst leggja land undir fót, geturðu notað ávísunina upp í gistingu hjá hvaða öðrum samstarfsaðila okkar sem er. Ávísunin er rafræn og rennur ekki út. Þú getur notað hana þegar þú vilt, að undangenginni bókun hjá viðkomandi gististað.

Ef þú rekst einhvern tíma á annað betra tilboð frá sama hóteli eða gistiheimili, geturðu notað ávísunina upp í það tilboð, eða notað hana að hluta til. Þú ert ekki bundinn af því tilboði sem þú valdir þér upphaflega.

Þú getur fengið ávísunina endurgreidda hvenær sem er, en þá aðeins þá upphæð sem þú lagðir sjálfur út. Þá punkta sem þú notaðir við kaupin, færðu einnig til baka.

Til baka