Siðareglur Sjúkraliðafélags Íslands

 

 

SIÐAREGLUR SJÚKRALIÐA

Í starfi sjúkraliða felst að veita umönnun, aðstoð og endurhæfingu þeim, sem vegna sjúkdóma, öldrunar eða fötlunar eru ekki færir um að framkvæma athafnir daglegs lífs. Sjúkraliði ver meginhluta starfstíma síns í  návist skjólstæðinga sinna og hefur hagsmuni þeirra ávallt að leiðarljósi.

 

  • Sjúkraliði rækir starf sitt af alúð, samviskusemi og trúmennsku og í fullu samræmi við þau hjúkrunarmarkmið sem sett hafa verið.
  • Sjúkraliði virðir rétt skjólstæðinga og rækir störf sín óháð  sjúkdómsgreiningu, þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum, aldri, kynferði, skoðunum og þjóðfélagsstöðu.
     
  • Sjúkraliði gætir trúnaðar við skjólstæðinga og sýnir fyllstu þagmælsku um einkamál þeirra.
     
  • Sjúkraliði leitar samráðs við viðeigandi aðila telji hann að á rétt skjólstæðinga sé gengið. Hann stuðlar að því í samvinnu við aðrar stéttir að skjólstæðingur (eða aðstandendur hans) sé upplýstur um rétt sinn.
     
  • Sjúkraliða ber að viðhalda faglegri þekkingu sinni eins og kostur gefst.
     
  • Sjúkraliði leggur sitt af mörkum til bættrar heilsuverndar.
     
  • Sjúkraliði gætir virðingar stéttar sinnar innan starfs sem utan.
     
  • Sjúkraliði skal aldrei ræða með lítilsvirðingu um skjólstæðinga sína, samstarfsmenn eða vinnustað.
     
  • Sjúkraliði stuðlar að góðu samstarfi innan stéttar sinnar og tekur þátt í félagsstarfi sem vinnur að bættum hag hennar.
     
  • Sjúkraliði rækir samvinnu við samstarfsstéttir og gagnrýnir þær ekki í áheyrn skjólstæðinga.
     

Félagar skulu kynna sér ákvæði reglna þessara og leitast við að fylgja þeim í starfi. Siðanefnd félagsins endurskoðar reglur þessar og  fjallar um meint brot á þeim. Í starfi sínu ber sjúkraliðum einnig að hlíta þeim reglum og skyldum sem landslög segja til um.

 

 

Sjúkraliðafélag Íslands | Grensásvegi 16 | 108 Reykavík | Sími 553 9493 / 553 9494 | Fax 553 9492 | slfi@slfi.is