Fréttir

Námskeið um lífeyrismál við starfslok

11 nóv. 2019

Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42.

Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.

Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því. Takmarkaður fjöldi sæta eru í boði á hvert námskeið en leitast er við að bæta við námskeiðum fari skrásetning fram úr áætluðum sætafjölda.

B deild – LsRb klukkan 16:30
A deild klukkan 17:30
V deild klukkan 18:30

Skráning fer fram á vef Brúar lífeyrissjóðs.

Til baka