Fréttir

Heilbrigðisstefnan kynnt í Valaskjálf á Egilsstöðum 22. ágúst

21 ágú. 2019

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Austurlands boðar til opins kynningarfundar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í Valaskjálf á Egilsstöðum, fimmtudaginn 22. ágúst klukkan 17.00 –19.00. Frummælendur auk ráðherra eru Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ).

Að loknum erindum ráðherra, forstjóra heilbrigðisstofnunarinnar og forstjóra SÍ verða pallborðsumræður. Auk frummælenda taka þátt í umræðunum þau Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og Hildur Þórisdóttir, forseti bæjarstjórnar Seyðisfirði.

Fundarstjóri er Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.
Fundurinn er öllum opinn, aðgangur ókeypis og eru íbúar í heilbrigðisumdæminu hvattir til að mæta.

Streymt verður frá fundinum á vef Heilbrigðisstofnunar Austurlands https://www.hsa.is

Til baka