Fréttir

Evrópudagur sjúkraliða

2 sep. 2021

Dagurinn er haldinn hátíðlegur í öllum aðildarlöndum EPN – The European Council of Practical Nurses –
en Sjúkraliðafélag Íslands er eitt af stoltum aðildarfélögum þess.

Markmið dagsins er að vekja athygli á störfum sjúkraliða hvar sem þeir starfa og minna á nauðsyn slíkrar fagstéttar
innan heilbrigðiskerfisins sem einnar af undirstöðum þess. Sjúkraliðar starfa á öllum heilbrigðisstofnunum landsins
og hjúkrunardeildum sjúkrahúsa auk fjölda þjónustudeilda, hjúkrunarheimila, heimahjúkrunar, félagsþjónustu, læknastofa og skóla.

Til baka