Fréttir

EPN kveðja frá formanni

26 nóv. 2021

The European Council of Practical Nurses (EPN) eru Evrópusamtök sjúkraliða og er Sjúkraliðafélag Íslands eitt af aðildarfélögum þess. Markmið samtakanna er meðal annars að efla hagsmuni sjúkraliða í Evrópu. Þann 26. nóvember ár hvert hafa aðildarfélögin haldið upp á daginn með margvíslegum hætti. Í ár er þessi dagur enn og aftur í skugga óvenjulegra tíma. Covid faraldurinn liggur á heilbrigðiskerfinu með tilheyrandi álagi.

Heilbrigðisstarfsmenn um land allt takast á við faraldurinn með samhentu átaki svo að gangverk heilbrigðiskerfisins virki. Þar hafa sjúkraliðar komið sterkir inn og sýnt að með störfum sínum og færni að þeir eru reiðubúnir að takast á við krefjandi aðstæður og axla ábyrgð. Þessir atburðir hafa sem aldrei fyrr dregið fram mikilvægi framlags sjúkraliða og sýnt þeir eru algerlega ómissandi hlekkur í keðju heilbrigðisþjónustunnar. Þegar reynir á þanþol heilbrigðiskerfisins má sjá að það gegnir hlutverki sínu. Það virkar þegar allir leggja sig fram.

Sérhæft starfsnám
Í gegnum árin hefur færni sjúkraliða til að sinna umönnun og hjúkrun tekið miklum breytingum samhliða gjörbreyttu námi, sem í dag er þriggja ára krefjandi starfsnám sem kennt er við framhaldsskólana. Þar læra nemendur bóklegar og verklegar heilbrigðisgreinar auk sérgreina í hjúkrun. Að námi loknu fá þeir starfsleyfi frá Landlækni og geta eftir útgáfu þeirra starfað sem sjúkraliðar. Sjúkraliðar sækja fram og geta þeir nú bætt við sig námi við Háskólann á Akureyri. Diplómanámapróf fyrir sjúkraliða mun í framtíðinni veita þeim betri færni til að takast á við sérhæfð hjúkrunarstörf samhliða aukinni ábyrgð.

Sjúkraliðar eru burðastétt í heilbrigðiskerfinu og eftirsóttir um land allt. Atvinnumöguleikar eru því bæði miklir og óháðir búsetu. Í samstarfi með öðrum fagstéttum vinna sjúkraliðar innan sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila, heilsugæslunnar og í heimahjúkrun. Þar standa sjúkraliðar vaktina á tímum Covid, alla daga allan sólahringinn og alltaf þegar á þarf að halda. Í raun er fátt sem er sjúkraliðum óviðkomandi.

Á þessum Evrópudegi sjúkraliða vil ég þakka sjúkraliðum vinnuframlagið, ósérhlífni við að sinna þeim veiku, faglega samvinnu og samskipti við aðrar heilbrigðisstéttir. Ég er stolt af því að eiga hlutdeild með sjúkraliðum, þessari öflugu fagstétt, og óska þeim innilega til hamingju með EPN daginn.

Með kveðju, Sandra

Til baka