Fréttir

Desemberuppbót 2021

8 nóv. 2021

Greiðsla desemberuppbótar verður með sama sniði og verið hefur og verður eftirfarandi miðað við fullt starf:

Ríkið greiðir 96.000 kr.
Reykjavíkurborg greiðir 106.100 kr.
Samband íslenskra sveitarfélaga 120.944 kr.
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu 96.000 kr.

Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf
tímabilið frá 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt
öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember.
Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall.

Til baka