Fréttir

Áhugaverð námskeið framundan hjá Framvegis

24 ágú. 2018

  

Fjölbreytt námskeið verða boði hjá Framvegis, miðstöð símenntunar nú í haust. Sjúkraliðanámskeiðin eru öll starfstengd og metin til launa fyrir stéttina. Framvegis nýtur liðsinnis fagráðs með uppbyggingu nýrra námskeiða og á í góðu samstarfi við aðrar símenntunarmiðstöðvar um námskeiðin.  Öll sjúkraliðanámskeiðin eru kennd í staðnámi en mörg þeirra eru einnig fjarkennd sem auðveldar sjúkraliðum á landsbyggðinni að sækja símenntun.

 

Námskeið sem verða í boði haustið 2018: 

 

Nýtt: ÁHRIF VAKTAVINNU Á ANDLEGA OG LÍKAMLEGA LÍÐAN SJÚKRALIÐA

Nýtt: LÍF MEÐ TAUGASJÚKDÓM: ALGENG EINKENNI, LÍFSGÆÐI OG ÚRRÆÐI TIL ORKUSPARNAÐAR

Nýtt: SÉRSTAKAR ÞARFIR ALDRAÐRA OG AÐSTANDENDA ÞEIRRA

Nýtt: GÓÐ NÆRING – BÆTT LÍFSGÆÐI

KVÍÐI OG KVÍÐAMEÐFERÐIR

PARKINSONS SJÚKDÓMURINN

ÁLAG Í SAMSKIPTUM Í HEILBRIGÐISGEIRANUM

ENGIN HEILSA ER ÁN GEÐHEILSU – MAT Á ÞUNGLYNDI OG SJÁLFSVÍGSHÆTTU

Nýtt: JAFNVÆGI Í DAGLEGU LÍFI HEILBRIGÐISSTARFSMANNA

Nýtt: TVÍGREINDUR VANDI / SKAÐAMINNKUN

 

Auk þess verður boðið upp á:

Leiðbeinendanámskeið, námskeið fyrir leiðbeinendur sjúkraliðanema verður haldið í nóvember hjá Framvegis.

Náms- og starfsráðgjöf; náms- og starfsráðgjafar hjá Framvegis eru til staðar fyrir þig ef þú ert eldri en 20 ára og hefur ekki útskrifast úr framhaldsskóla.

Raunfærnismat; raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í starfi og frítíma.

 

Framvegis – miðstöð símenntunar býður fyrirtækjum og stofnunum þjónustu við að greina þarfir fyrir fræðslu, þjálfun og annað sem tengist uppbyggingu starfsmanna og notar til þess faglega greiningaraðferð sem ber heitið Markviss.

 

 

Skráning fer fram á vefsíðu Framvegis www.framvegis.is en einnig er hægt að hringja í síma 581 1900

Sjúkraliðabæklingur haust 2018

Til baka